Umsagnir

Umsagnir

 

Börn og unglingar

skagafjordurLífsháttakönnunin sem lögð var fyrir 8., 9. og 10. bekki í apríl/maí 2013 í öllum skólum í Skagafirði.

Alls svöruðu 175, þar af 114 úr Árskóla , 32 úr Varmahlíðarskóla og 22 frá Hofsósi.

Spurt var hvað krakkarnir teldu að hefði mest áhrif hjá þeim í forvörnum.

Til lukku – Marita í fyrsta sæti enn og aftur!

Kveðjur, María Björk Ingvadóttir

 

Framhaldsskólar

Niðurstöður spurningalista sem lagður var fyrir nemendur ónefnds framhaldsskóla um fræðslufyrirlesturinn "Satt eða logið um kannabis".

framhaldsskolisvor1

Kennari spurði bekkinn sinn um fræðsluna og fékk þessa punkta:

  • Góður fyrirlestur - tók engan málstað
  • Mátti segja meira hvernig áhrif þetta hafði áhrif á hans líf
  • Kom með bæði jákvæðar og neikvæðar hliðar
  • Veit meira um plöntuna sem þau vissu ekki um áður
  • Jók skilning
  • Hafa séð þessi efni í notkun en finnst mismunandi hvort er mikið um þetta í nærumhverfinu eða ekki, fer eftir með hvaða hópum þau eru.
  • Virðist vera trend í sumum vinahópum en ekki í öðrum.
  • Finnst skipa miklu máli að hafa svona fyrirlestra, það góða við þennan fyrirlestur er að hann dæmdi ekki.
  • Gæti haft áhrif að ákvörðun ef ykkur væru boðin efni að þið velduð ykkur frá efninu.

 

Umsögn frá kennara

Ég kom inn þegar korter var liðið af fyrirlestrinum en eftir það fannst mér hann frábær eins og Magnús er alltaf. Fyrirlesturinn snérist algjörlega um það sem hafði verið talað um að fara í og var mjög vel skipulagður og undirbúinn. Magnús hélt athygli allra nemenda allan tímann og tókst held ég að sýna fram á hvað það er mikið "plat" og markaðssetning í kringum efnin sem verið er að rækta án þess að vera með áróður. Þ.e. það er verið að blekkja fólk og segja ekki allan sannleikann án þess að gera lítið úr þeim sem hafa trúað því að Kannabis sé hættulaust. Honum tókst að fá nemendur til að hugsa. 

Að mínu mati frábær fyrirlestur sem náði til nemenda á þeirra plani. 

 

Foreldrafræðsla

  • Miklar þakkir til þín fyrir frábæra og mikilvæga fræðslu í kvöld.
  • Þó maður sé foreldri með reynslu og lífsleiknikennari með reynslu og hafi komið á marga forvarnarfræðslufundi hjá þér í gegnum tíðina þá var fræðslan það góð að það var eins og maður hefði aldrei hlustað á svona fræðslu áður. Sem sagt ALLTAF mikilvægt að koma og maður fær aldrei næga fræðslu.

  • Ég vil byrja á því að þakka þér fyrir frábæran fyrirlestur í gær í Víðistaðaskóla.
  • Takk fyrir góðan fund...eigið hrós skilið
  • Mikilvæg fræðsla og frábær fyrirlestur hjá þér í kvöld dóttir mín var líka mjög ánægð með fræðsluna í morgun:) takk fyrir okkur kærlega.
  • Frábært að hlusta á þig í kvöld Maggi og þrátt fyrir að mæta í 3ja skiptið þá er þetta alltaf ferskt og skemmtilegt. Keep up the good work.
  • Takk kærlega fyrir frábæran fyrirlestur og fyrir að halda þessu starfi gangandi. Ég hef komið í nokkur ár og læri alltaf eitthvað nýtt.
  • Ég vil byrja á að þakka þér fyrir mjög góðan og upplýsandi fyrirlestur fyrir miðstigs foreldra í Ingunnarskóla í gær.
  • Vill byrja á að þakka þér fyrir allt þetta mikilvæga starf og þá ómetanlegu vitneskju sem þú veittir okkur foreldrum. 


 

Sæll Magnús

Ég sat foreldra-fyrirlesturinn á xxxxxxx. Ég er ekki foreldri en ég er kennari og hef mætt undanfarin þrjú skipti sem þú hefur komið hingað til xxxxxxx. Ég var mjög ánægð með þennan fyrirlestur. Mér fannst þú hafa breytt honum töluvert frá því ég hlustaði síðast og það voru mjög góðar breytingar.

Það sem ég var ánægðust með var upphafið, umræðan um tengslin milli foreldra og barna. Hvað þau skipta miklu máli því þetta er það sem við höfum mikið verið að glíma við hér á xxxxxxx. Börnum sem líður illa því að foreldrarnir hafa ekki tíma eða já, nenna ekki að sinna þeim. Svo á sálfræðingurinn eða skólinn að bjarga þessum greyjum sem ekki velja sér foreldra.

Og við erum mjög „græn“ gagnvart þessu, hvað varðar kannabisefni og eiginlega öllu sem viðkemur eiturlyfjum. Við fullorðna fólkið hér á xxxxxxx. En ég hef alveg heyrt um að þetta sé í gangi hér eins og á öðrum stöðum.

Fræðslan um efnin sem eru í kannabis var mjög góð sömuleiðis. Og að flétta svona inn í þetta viðtöl við krakka sem hafa ánetjast kannabisefnum er mjög gott og þú nærð alveg að halda athygli fólks í svona langan tíma. Ég held að fólk hefði alveg verið til í að sitja lengur, þó að bekkirnir séu þetta óþægilegir.

Það er ekkert sem ég sé að hefði mátt gera betur...hinn fullkomni fyrirlestur.

Og svo hitti ég nokkra nemendur 10. bekkjar áðan og þau sögðu sömu söguna, mjög skemmtilegt (af því að hann er svo fyndinn sögðu þau) og fræðandi. Einn besti svona fyrirlestur sem við höfum fengið sagði ein stelpan.

Kveðja

 

Umsagnir sendar ABC frá foreldrum eftir 5. bekkjar fræðslu

  • Það var fræðsla í Varmárskóla í morgun fyrir 5. bekk og foreldra. Þetta er eitt besta forvarnarstarf sem ég hef séð.
  • Takk fyrir mjög svo áhugaverðann fræðslufund í morgun í Selásskóla.  Ég ætlaði varla að hafa mig af stað því mér fannst 1,5 klst vera að taka of mikið af tíma mínum en mikið er ég fegin að ég fór og hlustaði. Hverri mínútu var vel varið.  Það kom svo margt fram sem ég hafði ekki hugmynd um, allar þessar vefslóðir og síður.
  • Mig langaði að þakka ykkur kærlega fyrir forvarnar námskeiðið (marit), þetta var ótrúlega dýrmætt og opnaði augun mín.
  • Vildi þakka fyrir góðan fund og góðar upplýsingar varðandi netnotkun barna á foreldrafundi í Selásskóla með Magnúsi. Fær mann til að skoða þetta og fylgjast betur með notkun barnanna minna á netinu.
  • Ég vil þakka kærlega fyrir mjög fræðandi forvarnarfund á ykkar vegum í morgun í Selásskóla. Fyrirlesarinn náði vel til barna og fullorðinna og efnið var hnitmiðað og mun verða nýtt áfram við eldhúsborðið á mínu heimili.
  • Ég vil þakka fyrir fyrirlesturinn um Maritíuverkefnið í 5.bekk Selásskóla. Fyrirlesturinn hreyfði mjög við mér sem foreldri og áttum við sonur minn langt og gott samtal um netið og fíkn í gærkvöldi. Í hraða nútímans var fyrirlesturinn góð áminning um að stoppa og líta í kring um sig á þennan svokallaða "saklaus hlut" á eldhúsborðinu; fartölvuna og hvaða ógn getur stafað af henni í þroska barna og unglinga.

  • Mig langar að koma á framfæri þökkum fyrir fyrirlestur í 5. bekk  Lækjarskóla í morgun. Ég er enn að jafna mig því fyrirlesturinn var mjög áhrifaríkur sem og Magnús sem fyrirlesari. Ég er mjög þakklát fyrir að börnin í þessum árgangi skyldu hafa lagt ABC lið síðasta vetur. Bestu þakkir fyrir frábært starf!  xxxx, djúpt snortin móðir.
  • Ég var á fyrirlestri í Lækjarskóla í Hafnarfirði í morgun, sem foreldri 5. bekkings. Maritafyrirlesturinn var mjög góður og snjallt að hafa börnin með í hluta af honum en foreldra eina í öðrum hluta. Frumburður minn er í 5. bekk svo mér fannst mjög mikilvægt að fá þessa fræðslu. Ég mun nýta mér efni morgunsins í samtöl við börnin mín næstu vikur og næstu ár.
  • Mér finnst mjög gott framtak hjá ABC barnahjálp að styðja verkefni hér heima eins og Marita. Okkur foreldra 10 ára drengs í 5.bekk Lækjarskóla, langar til þess að þakka fyrir okkur.
  • Mættum í morgun í skólann og hlýddum á Magnús Stefánsson á fræðslufundinum - hann var alveg frábær og fræðslan mjög mikilvæg fyrir okkur foreldrana. Virkilega til fyrirmyndar og mjög þarft í flóknu uppeldishlutverki okkar foreldranna.
  • Ég sat fund með Marita fræðslunni í Lækjarskóla Hafnarfirði í morgun. Ég vildi hrósa ykkur og samtökunum fyrir flotta fræðslu og forvarnir. Sniðugt að sitja svona fund með börnunum, því þá er allt "tuðið" í mömmu og pabba staðfest og börnin hlusta. Fyrirlesarinn náði vel til bæði barna og foreldra, mjög flottur. 
  • Ég var í Marita fræðslu í morgun hjá Vættaskóla og vildi koma á framfæri þakklæti fyrir þessa forvarnafræðslu, virkilega skemmtilegt og jafnframt nauðsynlegt. Mun hvetja alla foreldra að mæta á þessa fræðslu í framtíðinni, og virkilega gaman að hlusta á Magnús. Við mæðgur munum svo ræða saman í kjölfarið um fyrilesturinn en ég veit að dóttir mín hafði gaman af.
  • Langaði að þakka fyrir Marita fræðsu fyrirlesturinn sem ég sat í morgun. Hef alltaf vitað að netið er varasamt fyrir ungar sálir. Fyrirlesturinn opnaði (alltof bláeygðu saklausu) augun mín fyrir hversu hættulegur og nálægt þessi heimur er. Í dag hefjast skipulagðar forvarnir á mínu heimili svo að dóttir mín verði öruggari í netheimum eftir því sem hún eldist.
  • Sæl verið þið hjá ABC, okkur langar til að þakka fyrir okkur þar sem við fórum á forvarnarfyrilestur "Marita"  hjá Magnúsi í Engjaskóla í morgun. Mjög jákvætt og fræðandi fyrir börn og fullorðna!
  • Kærar þakkir fyrir frábæra fræðslu á vegum Maritafræðslunnar. Ég var í morgun á fundi hjá Magnúsi í Ingunnarskóla. Þetta var nauðsynleg hugvekja um allan þann sora sem er þarna úti og börnin varnarlaus gagnvart. Raunar vildi ég helst sjá þetta efni í sjónvarpinu t.d. á sama formi og stuttmyndir Umferðaráðs.
  • Takk fyrir fróðlegt erindi í Ingunnarskóla í morgun. Þetta á sannarlega erindi til ALLRA.
  • Okkur hjónum langar að þakka ykkur fyrir Maritafræðsluna fyrir 5 bekk.  Þetta var mjög góður og áhugaverður fundur og Magnús alveg frábær í þessu starfi.
  • Um leið og ég þakka fyrir þessa vönduðu fræðslu, vil ég jafnframt benda á mikilvægi þess að miða fræðsluna við þennan aldurshóp, 10-11 ára barna. Stúlkur á þessum aldri og dóttir mín meðtalin, eru farnar að nota Snapchat og Instagram, og hafa margar frjálsan aðgang að snjallsímum og Ipad. Þetta var góð áminning til okkar foreldranna að vera vakandi yfir notkuninni og niðurhali forrita sem þarna eru í boði. Ekki síður fannst mér ánægjulegt að Magnús skyldi ræða hvað almennt viðhorf um nekt, mörk og annað, sem kemur fram á samfélagsmiðlum og í tónlistarmyndböndum, sem þessi aldurshópur er að horfa á... er farinn að senda miður æskileg skilaboð til ungra stúlkna og ekki síður strákanna, þar sem ákveðin vanvirðing gagnvart stúlkum kemur fram. Við foreldar í Lindahverfinu erum almennt mjög vakandi yfir velferð barna okkar og foreldrar barna í bekk dóttur minnar eru með sína eigin FB síðu, þar sem við höfum vettvang til að ræða frekar forvarnir fyrir börnin okkar. Enn og aftur vil ég þakka kærlega fyrir þennan ánægjulega fund og óska ykkur og Magnúsi áfram góðs gengis.
  • Langaði að þakka ykkur fyrir að styðja Maritafræðsluna og gera foreldrum og börnum kleift að fá svona flottan fyrirlestur hjá Magnúsi, hann var alveg frábær :-)
  • Þakka kærlega fyrir Maríta  fræðslufund með 5 bekk í Lindaskóla. Frábært erindi og forvörn sem  kveikti mig og fleiri til umhugsunar.
  • Ég vil bara þakka kærlega fyrir fræðslufundinn sem ég sótti í morgun í Lindaskóla og vil ítreka mikilvægi þess að halda foreldrum við við efnið þegar kemur að forvörnum fyrir börnin okkar.

 

Vinnustaðir og stofnanir

Guðrún Frímannsdóttir

Félagsmálastjóri Fljótsdalshéraðs

"Það er hiklaust hægt að mæla með námskeiði Magnúsar Stefánssonar, „Að vera sjáandi“.  Þar fer hann af faglegri þekkingu, með nærgætni og ákveðinni glettni yfir fjölmörg atriði sem bæði fagfólk og aðstandendur geta nýtt sér til þess að verða „betur sjáandi“ þegar neysla fíkniefna er orðin hluti af lífi einstaklinga.  Námskeiðið samanstóð af áhrifamiklum myndskeiðum, fyrirlestri og umræðum þar sem Magnús var lausnamiðaður í sínum svörum.  Hann kom með fjölmargar góðar ábendingar sem vafalaust eiga eftir að auka færni starfsmanna hjá Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs og Heilsugæslu Austurlands, til þess að sjá einkenni fíkniefnaneyslu fyrr en áður var og þannig að koma fólki til hjálpar."

Egilsstaðir, janúar 2013

 

Anna Lára Guðfinnsdóttir

Deildarstjóri Akstursdeildar Strætó bs.

Við fengum Magnús hjá Marita til þess að kynna fyrir okkur „heim" fíkniefnanna með námskeiðinu „Að vera sjáandi". Hann fór yfir mörg atriði í fari, framkomu og útliti einstaklinga sem vert er að horfa eftir til þess að greina hvort einstaklingur sé undir áhrifum vímuefna, og sýndi okkur myndskeið með raundæmum því til stuðnings. Námskeiðið var mjög fróðlegt og algert „wake up call" um hversu algeng neysla vímuefna er í samfélaginu okkar. Námskeiðið á klárlega eftir að gangast okkur við störf okkar sem atvinnurekendur í mjög svo mikilvægu hlutverki sem Strætó sinnir í samfélaginu. Ég get hiklaust mælt með námskeiðinu og í rauninni ættu allir að sitja þetta námskeið, hvort sem þú ert atvinnurekandi, foreldri, vinur etc.

Reykjavík, maí 2014

 

Sæll Magnús

Að sjálfsögðu viljum við hjá (okkar fyrirtæki) styðja við bakið á því mikla og góða starfi sem þið eruð að vinna. Sjálfur hef ég tvívegis setið fyrirlestur hjá þér í x-skóla og dáðist mjög að því hversu vel þú náðir til krakkanna.

 

 

Úr ritgerð tveggja nemenda á Menntavísindasviði HI sem ákváðu að skrifa um Maritafræðsluna

Inngangur

Við ákváðum að skoða forvarnarfræðslu gegn vímuefnum og áfengisneyslu og hvernig hún er uppsett fyrir nemendur í grunnskólum og með áherslu á  Marita fræðsluna sem er í boði fyrir grunnskóla landsins að fá til sín. Einnig ætlum við að tala við starfsmann meðferðarheimilis fyrir ungar stúlkur og heyra frá honum um hvernig honum finnst að forvarnarfræðsla eigi að vera uppbyggð og hvort Marita fræðslan sé að hans mati áhrifarík leið í þessum annars mikilvæga málaflokki. Eins ætlum við að tala við nemanda í 8 bekk í grunnskóla sem farið hefur á Maritafræðslu. Við völdum okkur þennan málaflokk af því að við erum báðar foreldrar og þetta kemur öllum foreldrum við, og vildum við því kanna hvernig þessari fræðslu væri háttað og þar sem Marita fræðslan gengur mikið út á að sína videoverk þá fannst okkur tilvalið að skoða þetta og hvort að video hafi áhrifaríkari mátt en t.d. ef aðeins er verið að tala við krakkana.

Þegar við ræddum við 13 ára stúlkuna þá sagði hún okkur að sér hefði fundist fræðslan sem hún fékk frá þeim mjög góð. Fyrst í sjötta bekk þá var fræðslan með videoinu með Jónsa og hún hefði vel skilið hvað var verið að fara þegar talað var um að fá krakka til að sjá að heimur áfengis og fíkniefna er ekki áhugaverður og fyrir börn og unglinga sé það bara hættulegt að fara þá leið. Hún sagðist alveg vita hvað það getur verið erfitt að segja nei þegar vinirnir þrýsti á mann með að gera hluti sem hún kannski hefur ekki áhuga á, en eftir að hafa horft á þessa mynd hafi hún skilið betur að maður er bara sterkari manneskja ef maður segir nei, og standi með sinni ákvörðun. Árið á eftir eða í sjöunda bekk þá var myndin um Pál Óskar sýnd og eftir hana hafi hún tekið þá ákvörðun að segja nei við áfengi og fíkniefnum. Henni fannst flott að hafa vídeóin  og sagði að sér hefði fundist betra að horfa á þau og einbeita sér heldur en þegar Magnús var bara að tala eða sýna myndir. 

Þegar við ræddum svo við starfsmann meðferðarheimilisins sagði hann að eftir að hafa lesið sér til um Marita og velt þessu fyrir sér að þá sé hann almennt mjög ánægður með fræðsluna. En vill samt taka fram að hann hefur ekki séð videoverkin sem sýnd eru. Hann segir að það sé mjög mikilvægt að byrja nógu snemma að fræða þau eins og Marita er að gera.  Eins finnst honum flott hvernig ýmiskonar annarri fræðslu er fléttað með inn í eins og mikilvægi þess að borða hollt og sofa nóg, og hætturnar sem leynast á netinu. 

Karolína Árnadóttir

Helga Ósk Lúðvíksdóttir

 

Staðsetning

Síðumúli 33

108 Reykjavík

S. 519 2424