8. bekkur og foreldrar sér

8. bekkur og foreldrar sér

  • 8bekkur8. bekkingar fá fræðslu um þá skaðsemi sem það getur haft í för með sér að fikta við ýmis efni sem hafa neikvæð áhrif á þeirra þroska. Sýndar eru myndir sem undirstrika skaðsemi efnanna og viðtalsmyndbönd við einstaklinga sem hafa lent í vanda vegna neyslu sinnar.
  • Efni sem rædd eru: Innöndunarefni svo sem gas, tóbak (bæði munntóbak og sígarettur), landi og annað áfengi og kannabisefni (marijúana/gras og hass).
  • Markmiðið að vekja nemendur til umhugsunar um skaðsemi vímugjafa og hvetja þau til að taka afstöðu gegn þeim.
  • Samhliða nemendafræðslu verður boðið upp á foreldrafundi á kvöldin sem veitir sameiginlegan umræðugrundvöll unglinga og foreldra um þessi mikilvægu málefni.

cooltext1691476143cooltext1691477097

Fræðslan fellur vel undir markmið aðalnámskrár í lífsleikni þar sem nemendur eru m.a. hvattir til að:

  • bera ábyrgð á eigin lífi.
  • vega og meta áhrif fyrirmynda.
  • taka afstöðu gegn neyslu vímuefna.
  • móta sér heilbrigðan og ábyrgan lífsstíl.

Að sama skapi hentar foreldrafræðslan vel sem tæki til að auðvelda uppalendum umræður um ábyrgan lífsstíl og gefur nýja nálgun í þeim efnum gegnum þriðja aðila.

Á foreldrafundunum er m.a. lögð áhersla á að foreldrar og forráðamenn geri sér grein fyrir:

  • íslenskum veruleika í heimi fíkniefnanna.
  • hvaða hætta steðjar að börnum þeirra í þeim efnum.
  • áhrifamætti auglýsinga á unglinga.                                   
  • óbeinum áróðri fjölmiðla.
  • mikilvægi leiðsagnar í mótun lífsgilda barna sinna.
  • að sterkustu forvarnirnar koma heiman að.

9. bekkur og foreldrar sér

Staðsetning

Síðumúli 33

108 Reykjavík

S. 519 2424